Velkomin á heimasíðu Vina í bata
Vinir í bata er hópur fólks (karla og kvenna), sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl. Við höfum verið á okkar Andlega ferðalagi með öðru fólki og hvert með öðru og falið Guði að vera leiðsögumaðurinn. Við höfum fundið að vinna okkar í Tólf sporunum hefur leitt lækningu og bata inn í líf okkar og verið okkur andleg vakning. Þess vegna langar okkur til þess að þú fáir líka að reyna bata og eitthvað nýtt og gott inn í þitt líf og þínar aðstæður.
Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu og að þú ráðir ekki alltaf við aðstæður?
Hefurðu einhvern tíman velt því fyrir þér að þig langaði til og/eða þú þyrftir á því að halda að skoða lífið þitt - hvert þú stefnir - hverjar tilfinningar þínar eru og hvernig þú getur bætt samskipti þín við annað fólk?
Veistu að Tólf sporin eru kjörið verkfæri til þess arna. Við erum mörg sem getum vitnað um það af eigin reynslu. Sjá reynslusögur.

Vetrarstarfið
Nú fer að styttast í það að vetrarstarfið hefjist í kirkjunum. Við erum að setja inn dagsetningar og fundartíma. Í flestum kirkjum byrjar starfið í september með kynningarfundi og það skiptir miklu máli að vera með frá byrjun. Næstu þrír fundir eftir kynningar-fundinn eru líka opnir og allir velkomnir á þá fundi til að taka þátt í starfinu. Upplýsingar eru í viðburðardagatalinu hér til hægri og líka undir Kirkjur og fundartímar hér til vinstri.
Munið að það eru allir velkomnir og ekki þarf að skrá sig - heldur bara mæta á fyrstu fundina.
Fyrsta batamessa haustsins verður í Vídalínskirkju í Garðabæ
sunnudaginn 12. september kl. 17.00 síðdegis
Allir eru velkomnir - umræðuefni: Hvað er trú?
"Guð - gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli."
Reinhold Niebuhr Carnegie