Póstlisti
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá

Ritningargreinar við Tólf sporin     
Hér eru ritningargreinarnar sem eiga við hvert hinna Tólf spora og eru lesnar á víxl við sporin.

Ritningargreinarnar eru valdar af höfundum bókarinnar Tólf sporin - Andlegt ferðalag (The Twelve Steps - A Spiritual Journey, útg. RPI Publishing inc.)

  1. Rómv. 7:18 =    Ég veit að ekki býr neitt gott í mér, það er, í holdi mínu.  Að vilja veitist mér  auðvelt, en ekki að framkvæma hið góða.
  2. Filip. 2:13 =   Því að það er Guð sem verkar í yður bæði að vilja og framkvæma sér til velþóknunar.
  3. Rómv. 12:1 = Því brýni ég yður bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálfa  yður að lifandi, heilagri Guði þóknanlegri fórn.  Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi.
  4. Harmlj. 3:40 =  Rannsökum breytni vora og prófum og snúum oss til Drottins.
  5. Jak. 5:16a =  Játið því hver fyrir öðrum syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heilbrigðir.
  6. Jak. 4:10 =  Auðmýkið yður fyrir Drottni og hann mun upphefja yður.
  7. 1. Jóh. 1:9 =  Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur,  svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.
  8. Lúk. 6:31 = Og svo sem þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo skuluð þér og þeim gjöra.
  9. Matt. 5:23-24 =  Sértu því að færa fórn þína á altarið og minnist þess þar, að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér, þá skaltu skilja gjöf þína eftir fyrir framan altarið, fara fyrst og sættast við bróður þinn, koma síðan og færa fórn þína.
  10. Kor. 10:12 =  Sá er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki.
  11. Kol. 3:16a =  Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki.
  12. Gal. 6:1 =  Bræður!  Ef einhver misgjörð kann að henda mann, þá leiðréttið þér, sem andlegir eruð, þann mann með hógværð.  Og haf gát á sjálfum þér, að þú freistist ekki líka.
mánudagur 6 september 09 2010
Viðburðir
September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>
Nýjustu fréttir
Nýjar byrjanir...
Nú hafa flestar kirkjur látið vita um dagsetningar á nýjum byrjunum...
Fjórða sporið -...
Nú hefur verið sett inn á heimasíðuna hjálparefni við vinnu...