Fréttir
19.11.09
Fjórða sporið - hjálpargögn
Nú hefur verið sett inn á heimasíðuna hjálparefni við vinnu í fjórða sporinu sem er afrakstur mikillar vinnu nokkurra vina í bata undir leiðsögn Péturs.
Þetta efni var kynnt á samverunni í Skálholti nú í haust við mikla ánægju þeirra sem fengu þar að njóta og prófa.
Efnið finnið þið undir Tenglar - ítarefni-fræðsla. Til að auðvelda ykkur lífið getið þið smellt hér.
Þarna eru fjórða spors listar, glærur sem notaðar voru í Skálholti og fyrirlestur Péturs sem hægt er að hlusta á.
Gangi ykkur vel :)


